148. löggjafarþing — 46. fundur,  10. apr. 2018.

heilbrigðisþjónusta o.fl.

426. mál
[16:37]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki alveg hvert hv. þingmaður ætlar að leiða þessa umræðu, en ég vonast til þess að hv. velferðarnefnd fari yfir málið og lesi þau gögn sem því fylgja og þar með talið greinargerðina þar sem ágætlega er farið yfir þessi mál.