148. löggjafarþing — 49. fundur,  13. apr. 2018.

störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að finna að því að í annað sinn kom það fyrir að dómsmálaráðherra var ekki viðstödd umræðu um fjármálaáætlun ríkisstjórnar. En að sama skapi vil ég hrósa hæstv. fjármálaráðherra sem átti hér við okkur málefnalegar umræður í gærkvöldi og gerði sitt besta til að svara því sem til hans var beint.

Í vikunni kom út skýrsla frá Íslandsbanka um íslenska ferðaþjónustu. Þar kemur fram að á Airbnb-gistingu á Íslandi er u.þ.b. 20 milljarða kr. velta. Það eru líklega 3.500 einingar til leigu á Íslandi en aðeins 231 eining skráð. Það eru 3.200 óskráðar, án leyfis, greiða ekki skatta. Þetta er stærsti angi svarts hagkerfis á Íslandi.

Herra forseti. Þetta er dónaskapur. Dónaskapur við skattgreiðendur, við samkeppnisaðila, við þjóðfélagið, við þau sveitarfélög þar sem þetta er rekið. Ég er búinn að taka þetta mál upp líklega fimm sinnum við fjóra ráðherra, um að gerð verði gangskör að því að fá þessa aðila sem þessa atvinnustarfsemi stunda til þess að skrá sig og fá leyfi.

Það er furðulegt, en enn hefur enginn ráðherra treyst sér til að fara að þeirri tillögu minni að lögreglan verði fengin til þess að banka upp á hjá þessum aðilum, kanna hvort þeir hafi leyfi. Og ef ekki, að sekta þá og fá þá til þess að skrá sig. Það er auðvelt. Hér á korti má sjá Reykjavík. Rauðu punktarnir eru Airbnb-gististaðir. Þetta er ekkert mál fyrir lögregluna að fara á eitt „patról“ og banka upp á. Það þarf ekki að banka upp á hjá nema 100, þá koma hinir og skrá sig. Þetta er óþolandi.