148. löggjafarþing — 49. fundur,  13. apr. 2018.

störf þingsins.

[11:03]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég get upplýst hv. þm. Helga Hrafn Gunnarsson um að ég teljist eiginlega góðkunningi lögreglunnar. Það er ekki af því að ég er í Sjálfstæðisflokknum. Það kemur mér ekki á óvart að heyra þingmenn Pírata — öll pólitísk umræða þeirra snýst um að tortryggja aðra, gera þá óheiðarlega, segja að þeir séu spilltir.

Er ekki kominn tími til, hv. Píratar, jafnvel má Samfylkingin taka það til sín, að eyða nú tíma ykkar á þessu háa þingi í að ræða um stjórnmál, um framtíðina, hvernig við getum bætt atvinnulífið? Hvernig getum við bætt atvinnulífið úti á landi, hvernig sjáum við fyrir okkur framtíðina? Nei, það snýst alltaf um það að einhver annar er vondur, óheiðarlegur o.s.frv. Mönnum verður ekkert ágengt í að auka virðingu þingsins með slíkum málflutningi, ekki með því að bæta við fleiri fyrirspurnum og skýrslugerðum til þess að reyna að koma höggi á aðra, og snúa svo út úr öllum upplýsingum.

Í guðanna bænum, farið nú að tala um þau góðu verk sem hægt er að framkvæma, það sem vel er gert, gagnrýna málefnalega það sem þið teljið ekki vel gert, en hættið þessu vegna þess að það mun engum árangri (Forseti hringir.) skila til lengri tíma.

(Forseti (SJS): Forseti minnir hv. þingmann á að beina á máli sínu til forseta.)