148. löggjafarþing — 51. fundur,  16. apr. 2018.

stjórnarfrumvörp of seint fram komin -- beiðni um skýrslu.

[16:28]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Það er kominn botn í þetta mál, held ég. Svo háttar til um öll þessi dagskrármál að þau voru skráð fyrir 1. apríl. Þau voru öll bókuð fyrir 1. apríl þótt svo kunni að vera að einhverjum þeirra hafi verið útbýtt á dögunum þar á eftir. En þau voru öll skráð hér inn fyrir tilskilinn frest og þarf því ekki afbrigða við að þau komi á dagskrá.