148. löggjafarþing — 53. fundur,  23. apr. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:05]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Borist hafa fjögur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 424, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, frá Þorsteini Sæmundssyni, á þskj. 498, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni, á þskj. 731, um opinber störf utan höfuðborgarsvæðisins, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, og á þskj. 237, um innflutning á hráum og ógerilsneyddum matvælum, frá Bjarna Jónssyni.

Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 368, um hækkun bóta almannatrygginga, frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.

Loks hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 645, um atkvæðakassa, frá Birni Leví Gunnarssyni.