148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 882, um samninga um veitingu heilbrigðisþjónustu, frá Hönnu Katrínu Friðriksson.

Einnig hafa borist tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 727, um laun forstjóra og stjórna fyrirtækja í eigu ríkisins, frá Þorsteini Víglundssyni og á þskj. 917, um Bankasýslu ríkisins, frá Ingu Sæland.