148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

Þjóðskrá Íslands.

339. mál
[17:39]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um Þjóðskrá Íslands. Nefndin hefur fjallað um málið. Það bárust 11 umsagnir frá tíu umsagnaraðilum og flestallir fylgdu þessum umsögnum eftir og komu á fund nefndarinnar. Nefndin fékk m.a. á sinn fund Skúla Þór Gunnsteinsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Björgu Finnbogadóttur og Inga Þór Finnsson frá Þjóðskrá Íslands, Hrafnhildi Arnkelsdóttur frá Hagstofu Íslands, Þórð Sveinsson frá Persónuvernd, Sigurð Ingólfsson frá Gangverði ehf. og Hauk Arnþórsson.

Umsagnir bárust frá Félagi um foreldrajafnrétti, Gangverði ehf., Hagstofu Íslands, Hauki Arnþórssyni, Persónuvernd, Reykjavíkurborg, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fjármálafyrirtækja og Samtökum atvinnulífsins.

Um frumvarpið og tilgang þess er það að segja að þar er lagt til að sett verði ný lög um Þjóðskrá Íslands. Frumvarpið á að setja ramma utan um stofnunina og verkefni hennar og hlutverk. Þannig kveður frumvarpið á um yfirstjórn hennar, skipulag, markmið, verkefni og hlutverk. Ákvæði um verkefni stofnunarinnar eru á víð og dreif í löggjöfinni og erfitt að hafa yfirsýn yfir öll þau verkefni sem stofnunin sinnir. Frumvarpið á ekki að leysa af hólmi einstök sérlög sem kveða nánar á um verkefni stofnunarinnar. Þá er kveðið á um gjaldskrárheimildir stofnunarinnar í frumvarpinu.

Markmiðið með þessu frumvarpi er því að setja ramma utan um Þjóðskrá Íslands, verkefni hennar og hlutverk.

Kveðið er á um hlutverk stofnunarinnar í 3. gr. frumvarpsins og í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um hlutverk hennar með almennum hætti. Í öðrum málsgreinum ákvæðisins er kveðið nánar á um hlutverk stofnunarinnar.

Við meðferð málsins komu fram ábendingar vegna 3. gr. frumvarpsins sem kveður á um almennt hlutverk Þjóðskrár Íslands sem og verkefni stofnunarinnar. Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins sem kveður á um heimild Þjóðskrár Íslands til að safna saman, vinna úr og birta tölfræðilegar upplýsingar á sviði lögbundinna verkefna hennar að fullnægðum skilyrðum persónuverndar geti skarast við starfsemi Hagstofu Íslands um vinnslu opinberrar hagskýrslugerðar samkvæmt lögum um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007. Óljóst er hver markmið tölfræðivinnslu Þjóðskrár Íslands eru og hvort og hvernig vinnslan tengist opinberri hagskýrslugerð. Fyrir liggur að Þjóðskrá Íslands fer með umsýslu upplýsinga af ýmsu tagi og því nauðsynlegt að stofnunin hafi heimild til að taka saman þessar upplýsingar og birta, svo sem upplýsingar úr þjóðskrá og veðbandayfirlit, og að gefa út kjörskrárstofn. Nefndin tekur fram að með frumvarpinu er þó ekki ætlunin að Þjóðskrá Íslands fari inn á svið Hagstofu Íslands samkvæmt lögum þar um. Í tengslum við þetta komu fram athugasemdir um hvort með frumvarpinu ætti að fella brott 4. mgr. 19. gr. laga um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962. Í ákvæðinu er m.a. kveðið á um heimild Hagstofu Íslands til að hagnýta þjóðskrá og gögn hennar til hagskýrslugerðar og skyldu Þjóðskrár Íslands til að afhenda Hagstofunni gögnin gjaldfrjálst. Nefndin bendir á að með fyrirliggjandi frumvarpi er ekki lögð til breyting á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu og þessi heimild því enn til staðar.

Jafnframt komu fram ábendingar um að hvorki í 3. gr. né annars staðar í frumvarpinu væri skýrt kveðið á um hlutverk Þjóðskrár Íslands hvað varðar útgáfu og notkun kennitalna en rík rök eru fyrir því að kennitölur njóti lagaverndar. Fyrir liggur að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti vinnur að drögum að frumvarpi til laga um þjóðskrá og almannaskráningu þar sem stefnt er að því að setja ákvæði um kennitölur. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að skýrt sé kveðið á um hvaða reglur gilda um þetta atriði og leggur því til breytingar á a-lið 2. mgr. 3. gr. frumvarpsins þar sem áréttað verður að Þjóðskrá Íslands gefi út kennitölur.

Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið þess efnis að rétt væri að bæta nýrri málsgrein við 3. gr. frumvarpsins þess efnis að Þjóðskrá Íslands skuli veita uppflettiaðgang að upplýsingum um foreldra og forsjáraðila barns að fullnægðum skilyrðum persónuverndar. Nefndin var upplýst um að Þjóðskrá Íslands hefur hafið skráningu í þjóðskrá á upplýsingum um vensl og forsjá en enn sem komið er eru upplýsingarnar ekki aðgengilegar. Nefndin tekur fram að frumvarpi þessu er ætlað að setja ramma utan um verkefni Þjóðskrár Íslands en fyrir liggur að hafin er vinnsla við frumvarp til laga um þjóðskrá og almannaskráningu þar sem heppilegra væri að kveða á um slíka skráningu. Í ljósi þessa beinir nefndin því til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis að hafa hliðsjón af framangreindri athugasemd um slíka skráningu í þjóðskrá við vinnslu frumvarpsins.

Í frumvarpinu er það nýmæli að ekki er gert ráð fyrir að skipuð verði stjórn yfir Þjóðskrá Íslands er lýtur að skráningu og mati fasteigna. Í dag eiga sæti í stjórn Þjóðskrár Íslands fulltrúar frá Samtökum fjármálafyrirtækja og Samtökum sveitarfélaga sem greiða hluta rekstrarkostnaðar. Í greinargerð frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

„Í 4. mgr. er lagt til að ráðherra geti sett á stofn fagráð með fulltrúum stofnunarinnar, hagsmunaaðila og annarra aðila. Slíkir aðilar geta verið samtök fjármálafyrirtækja, embætti sýslumanna og félag fasteignasala svo að fáein dæmi séu nefnd. Sambærilegt ákvæði er að finna í 2. mgr. 3. gr. laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012. Nauðsynlegt er að ráðherra geti skipað fagráð eins og þörf krefur hverju sinni eða skipulagt samráð um ýmis sérmál og tæknileg úrlausnarefni.“

Fyrir nefndinni komu fram ábendingar um mikilvægi þess að tryggja að samráð, líkt og ég fór hér yfir úr greinargerð frumvarpsins, verði haft við hagsmunaaðila á öðrum vettvangi sem sinni m.a. ákveðnu eftirlitshlutverki með starfseminni. Í 4. mgr. 3. gr. frumvarpsins er kveðið á um að ráðherra geti sett á stofn fagráð með fulltrúum stofnunarinnar, hagsmunaaðila og annarra aðila í þeim tilgangi að vera vettvangur samráðs og upplýsingaskipta á fagsviðum stofnunarinnar. Í ljósi þess að um er að ræða fjárhagslega hagsmuni leggur nefndin til að ráðherra verði gert skylt að setja saman fagráð.

Í 5. gr. frumvarpsins er fjallað um þjónustugjöld. Þar er lagt til að Þjóðskrá Íslands verði heimilt að innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá svo sem heimilt er í dag. Á fundum nefndarinnar var nokkuð fjallað um þessa gjaldtökuheimild Þjóðskrár Íslands í 5. gr. frumvarpsins. Fram komu sjónarmið um að 5. gr. væri of rúm og að hvergi væri fjallað með skýrum hætti um fjármögnun stofnunarinnar auk þess sem fram komu ábendingar um að ákvæðið uppfyllti ekki skilyrði tilskipunar 2013/37/ESB. Fyrir nefndinni var áréttað að Þjóðskrá Íslands væri ekki eingöngu rekin á grundvelli þjónustugjalda og almennt er það svo að þjónustugjöld duga ekki til að greiða fyrir þá þjónustu sem veitt er. Endurskoðuð gjaldskrá var undirrituð í ár og í henni hækkuðu sumir liðir en aðrir lækkuðu. Var nefndinni tjáð að þeir liðir sem hækkuðu hefðu þurft að hækka meira. Nefndin áréttar að líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að breytingar verði á því fyrirkomulagi að ríkissjóður standi undir rekstri Þjóðskrár Íslands að hluta en að tekjur sem stofnunin aflar sér með sölu upplýsinga og þjónustu, þ.e. með innheimtu þjónustugjalda, renni beint til stofnunarinnar.

Í áliti umboðsmanns Alþingis nr. 2534/1998 kemur fram að þegar um þjónustugjöld sé að ræða hafi það „grundvallarþýðingu að afmarka með skýrum og glöggum hætti þá kostnaðarliði sem felldir verða undir viðkomandi gjaldtöku“. Umboðsmaður hefur staðfest að við afmörkun á efnislegu umfangi þeirra kostnaðarliða sem heimilt er að mæta með þjónustugjöldum sé unnt að taka tillit til fasts kostnaðar við rekstur stofnunar sem er í nánum og beinum efnislegum tengslum við þá þjónustu sem veitt er á grundvelli laga og fellur undir gjaldtökuheimild. Fyrir nefndinni kom fram að við samningu 5. gr. frumvarpsins hafi verið höfð hliðsjón af sambærilegum ákvæðum í lögum, einkum og sér í lagi 13. gr. laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, og 9. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, en einnig fleiri ákvæða svo sem 19. gr. laga um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar, Samgöngustofa – Innheimta kostnaðar, kemur fram að framangreint ákvæði 13. gr. gefi skýrar forsendur fyrir gjaldskrá og þjónustugjöldum.

Á fundum nefndarinnar komu fram sjónarmið um að með gjaldtöku væri verið að takmarka möguleika einstaklinga og frumkvöðla til að endurnýta opinberar upplýsingar í þágu nýsköpunar. Nefndin telur að gjaldtaka samkvæmt 5. gr. frumvarpsins og gjaldtaka til að endurnýta opinberar upplýsingar skarist ekki. Núverandi heimildir Þjóðskrár Íslands til gjaldtöku miðast við gjald fyrir að veita aðgang að tilteknum upplýsingum. Nefndinni var tjáð að Þjóðskrá Íslands tæki ekki sérstakt gjald fyrir að leyfa endurnot upplýsinganna í samræmi við hin nýsamþykktu lög um endurnot upplýsinga. Nefndin bendir á að þrátt fyrir lagafordæmi sem vísað er til eru gjaldtökuheimildir laga nokkuð mismunandi og t.d. virðist gjaldtökuákvæði nýsamþykktra laga um endurnot opinberra upplýsinga ganga nokkuð skemur en ákvæði 5. gr. frumvarpsins. Nefndin telur að tryggja mætti með skýrum hætti samræmi í forsendum gjaldskráa hins opinbera með það að leiðarljósi að gjöldum fyrir þjónustu sem hinu opinbera er skylt að veita og varða réttindi borgara sé stillt í hóf. Jafnframt komu fram ábendingar um að óljóst væri hver ætti að greiða kostnað vegna gerðar kjörskrárstofna fyrir kosningar. Nefndin telur ljóst að Þjóðskrá Íslands geti sett gjald fyrir gerð kjörskrárstofna með heimild í f-lið 5. gr. frumvarpsins, en kjörskrárstofn er unnin upp úr öðrum skrám stofnunarinnar.

Þó nokkuð var rætt um upplýsingasamfélagið og málefni Ísland.is. Við meðferð málsins fyrir nefndinni komu fram athugasemdir um að ákvæði um upplýsingasamfélagið hefði verið tekið út úr frumvarpinu, þ.e. málefni er varðar útgáfu Íslykils og innskráningarþjónustu Ísland.is, sem og þróun og rekstur upplýsinga- og þjónustuveitunnar Ísland.is. Nefndin áréttar að ákvæðin hafi verið tekin út vegna tilfærslu málaflokksins frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti til fjármála- og efnahagsráðuneytis og því ekki talið tímabært að setja ákvæði um Ísland.is í frumvarpið. Þjóðskrá heyrir undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og bendir nefndin á að það geti verið vandkvæðum bundið að fela henni verkefni sem eru á ábyrgð annars ráðherra. Með slíkri lögfestingu færi fjármála- og efnahagsráðuneyti með stjórnarfarslega ábyrgð á tilteknu verkefni án þess að hafa formlegar stjórnunar- og eftirlitsheimildir, samanber IV. kafla laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Fyrir nefndinni kom fram að fjármála- og efnahagsráðuneytið hefði gert samning við Þjóðskrá Íslands um framkvæmd vegna Ísland.is. Nefndinni var kynnt að það fyrirkomulag gengi vel og að ráðuneytið og Þjóðskrá Íslands ynnu saman að mikilvægum endurbótum á síðunni Ísland.is og pósthólfi sem tengist síðunni. Margvíslegar breytingar á sviði upplýsingatæknimála undir yfirskriftinni Stafrænt Ísland væru einnig í deiglunni. Þá kom fram að ráðuneytið hefði til athugunar almenna lagasetningu um rafræn samskipti opinberra aðila og almennings.

Nefndin telur í ljósi þessa ekki ástæðu til að festa í lög um Þjóðskrá Íslands ákvæði um inntak og skipulag Ísland.is en leggur áherslu á mikilvægi þess að verkefnum er varða Ísland.is, útgáfu Íslykils, upplýsingasamfélagið og rafræn samskipti verði fenginn skýr lagarammi og ábyrgðaraðili og beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytis að flýta vinnu við gerð frumvarps þar um.

Þá eru hér tiltekin önnur atriði sem nefndin fjallaði um og leggur hún jafnframt til að bætt verði við almennri tilvísun til laga um persónuvernd í a- og c-lið 2. töluliðar, a- og b-lið 3. töluliðar og 4. tölulið 9. gr. frumvarpsins til að gæta samræmis við orðalag 3. mgr. 3. gr. frumvarpsins.

Ég hef farið hér yfir þau helstu mál og breytingar þar að lútandi sem nefndin fjallaði um og lagði mikla vinnu í. Hér er vissulega verið að ramma inn hlutverk og verkefni Þjóðskrár Íslands en mörg þessara verkefna eru mjög mikilvæg. Sérstaklega þurfti að fara yfir nokkur málefni þegar kom að gjaldskrá og upplýsingasamfélaginu, eins og ég fór yfir.

Virðulegi forseti. Að því mæltu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

1. Við 3. gr. frumvarpsins, sem snýr að hlutverki þjóðskrár, á eftir orðunum „þjóðskrá og tengdar skrár“ í a-lið 2. mgr. komi: gefur út kennitölur.

Í stað orðanna „getur sett“ í 4. mgr. komi: skal setja.

2. Það er sú breyting sem ég fór yfir áðan við 9. gr., sem snýr að breytingu á öðrum lögum, Við a- og c-lið 2. töluliðar, a- og b-lið 3. töluliðar og 4. tölulið 9. gr. bætist: að fullnægðum heimildum laga sem um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga gilda hverju sinni.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt svo breytt. Undir nefndarálitið rita eftirtaldir hv. þm.: Páll Magnússon, formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar, Willum Þór Þórsson, Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Birgir Ármannsson, Guðmundur Andri Thorsson, Jón Steindór Valdimarsson, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.