148. löggjafarþing — 82. fundur,  18. júlí 2018.

þingfrestun.

[15:13]
Horfa

Forseti Íslands (Guðni Th. Jóhannesson):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til samþykkis Alþingis, fresta fundum Alþingis, 148. löggjafarþings, frá 18. júlí 2018 til 11. september 2018.

Gjört í Reykjavík, 17. júlí 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.

_________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu bréfi sem ég nú hef lesið lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 148. löggjafarþings, er frestað.

Bið ég þingheim að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.