149. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2018.

tekjuskattur.

335. mál
[16:07]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra svarið og vænti góðs af umfjöllun hv. efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarpið. Ég vil leyfa mér að nefna nokkur atriði um það en mun fresta því þar til kemur að ræðutíma mínum á eftir.