149. löggjafarþing — 37. fundur, 23. nóv. 2018.
veiðigjald.
144. mál
Virðulegur forseti. Ég er greinilega einfaldari maður en ég hélt því mér gengur mjög illa að fá skýrt út hvað minni hlutinn á við, bæði í nefndaráliti sínu, orðum hér og eins í breytingartillögu. Þess vegna langar mig bara að fá skýrt svar, helst já eða nei. Er hv. þingmaður á móti afkomutengingu veiðigjalda?