149. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2018.

veiðigjald.

144. mál
[16:41]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Þarna stendur í 4. gr. að ráðherra auglýsi gjaldið sem krónur á kílógramm landaðs óslægðs afla. Ég velti fyrir mér hvort að þarna þyrfti ekki að standa „slægðs afla“. En það er bara athugasemd mín við við þessa grein. Ég mun segja já í atkvæðagreiðslu.