149. löggjafarþing — 57. fundur, 24. jan. 2019.
lánskjör hjá LÍN.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svarið. Framfærsla námsmanna er langt undir því sem flokkast sem lágmarkslaun og flestar stéttir samfélagsins berjast nú fyrir hækkunum á þeim. Það er löngu orðið tímabært að gera þessar breytingar og ég fagna þessari vinnu sem nú er í gangi og þakka aftur fyrir gott svar.