149. löggjafarþing — 68. fundur, 20. feb. 2019.
fullgilding á uppfærðum fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Tyrklands.
499. mál
Herra forseti. Ég get ekki greitt þessari tillögu atkvæði mitt, m.a. vegna þeirra víðtæku mannréttindabrota sem eiga sér stað í Tyrklandi og einnig vegna þess að mér fannst hér kjörið tækifæri fyrir stjórnvöld til að þrýsta á stjórnvöld í Tyrklandi um að veita upplýsingar um afdrif Hauks Hilmarssonar. Það fór forgörðum og ég get ekki stutt þessa tillögu eins og hún liggur fyrir núna.