149. löggjafarþing — 75. fundur, 5. mars 2019.
stimpilgjald.
88. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmann fyrir. Ég held að það gæti verið góð lausn. Ég yrði afskaplega glöð ef ég þyrfti ekki að leggja þetta mál fram í fimmta sinn næstkomandi haust. Ég trúi því að í hv. efnahags- og viðskiptanefnd séu aðilar sem eru til í að beita sér fyrir skattalækkunum og að létta byrðum af fólki. Það er nákvæmlega það sem við getum gert með því að búa til plan um sólarlagsákvæði þessa úrelta skatts.