149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

kosning 4. varaforseta í stað Þórunnar Egilsdóttur, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.

[14:16]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Eins og tilkynnt var í upphafi þingfundar í gær hefur borist bréf frá Þórunni Egilsdóttur, 4. þm. Norðaust., um að hún segi af sér sem 4. varaforseti Alþingis.

Samkvæmt því er nú á dagskrá þessa fundar kosning 4. varaforseta. Borist hefur ein tilnefning um Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvest. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Willum Þór Þórsson réttkjörinn sem 4. varaforseta Alþingis. Ég óska honum velfarnaðar í starfi og vænti góðs af samstarfi við hann í forsætisnefnd.