149. löggjafarþing — 80. fundur,  19. mars 2019.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

110. mál
[19:06]
Horfa

Ásgerður K. Gylfadóttir (F) (andsvar):

Takk fyrir þetta, hv. þingmaður. Mig langar til að spyrja. Þér er tíðrætt um, eða hv. þingmanni er tíðrætt um aukna peninga í lýðheilsusjóð og þann ábata sem þjóðin gæti haft af því. Mun hv. þingmaður beita sér fyrir því að áfengisgjald verði hækkað óháð þessu frumvarpi, fái það ekki framgang? Mun það verða baráttumál þingmannsins?

(Forseti (ÞorS): Forseti minnir enn á að þingmenn beini orðum sínum til forseta eða ávarpi hvern annan hv. eða með fullu nafni.)