149. löggjafarþing — 83. fundur,  25. mars 2019.

breyting á starfsáætlun.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forsætisnefnd samþykkti fyrr í dag breytingu á starfsáætlun. Samkvæmt henni átti fimmtudagurinn 28. mars nk. að vera nefndadagur en nú hefur verið ákveðið að hafa þingfund að hluta til þann dag til að ljúka fyrri umr. um fjármálaáætlun. Þingfundur mun hefjast kl. 10.30 og standa fram undir hádegi eða þar til fyrri umr. um fjármálaáætlun er lokið. Nefndir geta fundað bæði fyrir þingfundinn og eins í eftirmiðdaginn, eftir hádegið.