149. löggjafarþing — 84. fundur, 26. mars 2019.
fjármálaáætlun 2020--2024.
750. mál
Forseti vill taka fram, áður en hv. þingmaður gengur í ræðustólinn, að nú fara í hönd tveir langir dagar með hundruðum orðaskipta í andsvörum, svörum og stuttum ræðum við fagráðherra. Forseti mun verða nokkuð stífur á því að tímamörk séu virt því að safnast þegar saman kemur. Það verður ekki sýnt mikið umburðarlyndi gagnvart því að menn fari yfir ræðutíma.