149. löggjafarþing — 97. fundur,  30. apr. 2019.

utanríkis- og alþjóðamál.

863. mál
[15:08]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir þessi svör. Ég held að það sé mikilvægt, þó að okkur greini á um einhverja hluti, að það sé hægt að ræða þá hér. Þetta er búið að vera ágætis samtal um þessa ágætu skýrslu sem hér liggur fyrir.

Ég ætla að hlusta eitthvað áfram og kannski kemur ráðherra og kveikir eitthvað í mér aftur, þá kemur maður í seinni ræðu, en ef ekki vil ég að endingu bara þakka ráðherra og starfsfólki ráðuneytisins fyrir þessa ágætu skýrslu.