149. löggjafarþing — 102. fundur,  13. maí 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Lilja Alfreðsdóttir verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Eins og tilkynnt var um á vef Alþingis tók 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Reykv. s., Alex B. Stefánsson, sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana fimmtudaginn 9. maí sl.

Þá hefur borist bréf frá 8. þm. Norðvest., Sigurði Páli Jónssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag, mánudaginn 13. maí, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu, Jón Þór Þorvaldsson.

Þeir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.