149. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2019.

almannatryggingar.

844. mál
[20:19]
Horfa

Flm. (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, þ.e. hækkun lífeyris. Flutningsmenn auk mín er restin af Samfylkingunni, sjö þingmenn.

Við 1. gr.: Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 69. gr. skulu bætur almannatrygginga, svo og greiðslur samkvæmt 63. gr. og fjárhæðir samkvæmt 22. gr., hækka í samræmi við almennar hækkanir lægstu launataxta samkvæmt lífskjarasamningi 2019–2022.

2. gr. hljóðar svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.

Frumvarp í sama dúr var lagt fram á 145. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Málið er nú lagt fram aftur með breytingum sem taka mið af nýundirrituðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, sem undirritaðir voru 3. apríl 2019, og samsvarandi breytingum á röksemdum í greinargerð.

Með frumvarpi þessu er lagt til að elli- og örorkulífeyrir almannatrygginga fylgi þróun lægstu launataxta í samræmi við kjarasamninga og verði 390.000 kr. árið 2022. Greiðslurnar fari stighækkandi fram til 2022 með hliðstæðum hætti og lægstu laun samkvæmt kjarasamningum.

Markmið frumvarpsins er að aldraðir og öryrkjar fái mannsæmandi greiðslur til framfærslu. Ljóst er að hópur aldraðra og öryrkja býr við fátækt. Tæplega fjórðungur öryrkja býr við skort á efnislegum gæðum samkvæmt nýjustu rannsóknum Hagstofu Íslands og eru öryrkjar sá hópur sem verst stendur þegar þátttakendur eru greindir eftir atvinnustöðu. Frá árinu 1998 hefur kjaragliðnun öryrkja numið 59,4% samkvæmt tölum sem unnar hafa verið fyrir málefnahóp Öryrkjabandalags Íslands um kjaramál. Staðan er þannig nú að þúsundir lífeyrisþega ná ekki viðmiðum um lágmarkslífeyri og fá þar af leiðandi sérstaka uppbót til framfærslu, þ.e. þeir sem eiga rétt á henni.

Til grundvallar þeim hækkunum sem lagðar eru til í frumvarpinu liggja hækkanir samkvæmt kjarasamningum milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins frá 3. apríl 2019 sem ætlað er að gilda til 2022. Í samningnum er miðað við stighækkandi laun á samningstímanum og að lægstu launataxtar verði 390.000 kr. á mánuði árið 2022. Samkvæmt kjarasamningum voru lágmarkslaun hækkuð í 317.000 kr. á mánuði 1. apríl 2019 og eiga að hækka um 73.000 kr. til viðbótar til ársins 2022.

Boðuð hækkun lífeyris almannatrygginga í fjármálaáætlun er langt frá því að ná fyrrgreindum markmiðum. Lágmarksframfærslutrygging þeirra sem fá örorku og endurhæfingarlífeyri er 247.183 kr. hjá þeim sem fá ekki greidda heimilisuppbót. Hámarkslífeyrir með öllum tengdum greiðslum er 310.800 kr. á mánuði.

Það er ljóst að margir ná ekki þeirri upphæð. Því er, frú forseti, lagt til að upphæðin þróist með eftirfarandi hætti: Að 1. apríl 2019, sem er kannski orðið fullseint, verði það 317.000 kr. á mánuði, 1. apríl 2020 verði það 341.000 kr. á mánuði, 1. janúar 2021 verði það 365.000 kr. á mánuði og 1. janúar 2022 verði það 390.000 kr. á mánuði. Einungis fyrsta hækkunin þyrfti því að vera afturvirk um nokkrar vikur.

Samhliða þeim breytingum sem lagðar eru til er líka alveg ljóst að draga þarf úr vægi tekjuskerðinga vegna sérstakrar uppbótar á lífeyri sem stundum er kölluð hérna í sal króna á móti krónu skerðing, en um hana er kveðið á í lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Gert er ráð fyrir að breytingar á fjárhæðum til samræmis við frumvarpið verði birtar í reglugerðum.

Frú forseti. Það eru fordæmi fyrir því að þessum hópum séu ákvarðaðar kjarabætur í tengslum við samninga. Það var t.d. gert árið 2011 þegar Alþingi þess tíma hækkaði greiðslur til hópanna í samræmi við kjarasamningana þá. Ef einhver vill vísa í það að nú sé vinna í gangi við að ná saman við þá hópa bendi ég á að reynslan sýnir að það mun ganga allt of hægt. Hæstv. forsætisráðherra landsins sagði í þingræðu fyrir einu og hálfu ári síðan að þetta væru einmitt hópar sem ættu ekki þurfa að bíða og mættu ekki bíða. Hér er því verið að koma til móts við leiðtoga ríkisstjórnarinnar.

Ég geri ráð fyrir að það verði auðsótt mál hjá flestum flokkum að greiða fyrir málinu og tryggja að þessir hópar, sem svo sannarlega eru illa staddir, margt í þeim a.m.k., fái sömu hækkanir og verið er að veita þeim sem eru á lægstu launatöxtunum í samfélaginu, annars er ljóst að það fólk mun dragast enn aftur úr.

Frú forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til velferðarnefndar til skjótrar en vandaðrar og frekari umfjöllunar.