149. löggjafarþing — 109. fundur,  23. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:56]
Horfa

Forseti (Willum Þór Þórsson):

Forseti vill gera allt sem í hans valdi stendur til að mæta athugasemdum hv. þingmanna. Forseti hefur ekki haft tök á því, meðan hann sinnir sínu starfi hér, að kynna sér nýjustu fréttir. Mælendaskráin er vissulega opin öllum og ég held að hvatningu hv. þingmanna til annarra þeirra hv. þingmanna sem gætu sett sig á mælendaskrá hafi verið komið vel á framfæri.