149. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2019.

almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).

[19:48]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Góðir landsmenn. „Við — kynslóðin sem lifir og gengur á jörðinni — við erum síðasta kynslóðin sem getur brugðist við þeirri ógn sem að okkur steðjar. Og þið stjórnmálamenn getið gert það sem gera þarf.“ — Þetta sagði Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri, þegar hann tók við verðlaunum Norðurlandaráðs fyrir kvikmyndina Kona fer í stríð. Hann hvatti um leið stjórnmálamenn um allan heim til að vera hugrakkari og gefa svona kosningaloforð: „Kjósið mig og ég mun sjá til þess að þið fáið minna af næstum öllu; minna dót, minna af kjöti og færri ferðalög.“ Til að fá kjósendur til að bíta á agnið ættu stjórnmálamenn að lofa í staðinn meiri menningu og skemmtun, heilbrigðari lífsstíl og lengra lífi, meira af samveru, ljóðum og ást, tónlist og bókmenntum.

Þessi hvatningarorð Benedikts eru ágæt. Hugrakkir stjórnmálamenn verða að leggja grunn að hagvexti sem er kolefnislaus, styðja umhverfisvæna vinnu sem stoð undir velferðina vegna þess að hlýnun jarðar er ógn sem verður stöðugt áþreifanlegri og ágengari. Á norðurslóðum eru áhrifin þrisvar sinnum meiri en annars staðar og jöklar bráðna með skelfilegum afleiðingum. Hamfarahlýnun spyr ekki um landamæri og engin þjóð getur lýst yfir hlutleysi í stríðinu við hana. Stærstu vandamál heimsins verða aðeins leyst með aukinni alþjóðlegri samvinnu, hvort sem þau snúa að baráttu gegn fátækt, ójöfnuði eða loftslagsvá. Það þarf kjarkmikla stjórnmálamenn til að leiða róttækar aðgerðir.

Máttleysisleg loftslagsáætlun ríkisstjórnar Íslands fær hins vegar algjöra falleinkunn. Þess vegna lagði Samfylkingin fram þingsályktunartillögu þar sem ríkisstjórninni er falið að útbúa grænan samfélagssáttmála sem taki til allra sviða þjóðlífsins. Meginþráður sáttmálans á að vera sjálfbærni og að Ísland verði grænt land með grænt hagkerfi. Unga fólkið krefst þess að við stjórnmálamenn leiðum breytingar sem virka. Þeirra er framtíðin en aðeins ef við stöndum í lappirnar gegn stundargróða og sérhagsmunum og tökum stór græn skref fyrir börnin okkar.

Það er ekki aðeins hamfarahlýnun sem er ógn við framtíð barna á Íslandi. Nýjar tölur frá Rannsóknum & greiningu benda til þess að fleiri en 13.000 börn verði fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdaginn sinn, sum hver daglega. Afleiðingar þess að verða fyrir ofbeldi sem barn eru margfaldar á við fullorðna. Ofbeldi gegn börnum fer oftast leynt og stjórnvöld taka þátt í feluleiknum því að fullnægjandi eftirlit er ekki til staðar. Það er ekki nóg að skipta titlinum húsnæðisráðherra út fyrir barnamálaráðherra eins og gert var hér á dögunum. Raunverulegra aðgerða er þörf.

Eitt af forgangsmálum Samfylkingarinnar á þessu þingi var aðgerðaáætlun til næstu fjögurra ára til að styrkja stöðu íslenskra barna. Þar á meðal eru aðgerðir til að vernda börn og ungmenni fyrir vanrækslu, heimilisofbeldi og kynferðisbrotum. Alþingi samþykkti að vísa tillögunni til ríkisstjórnar til frekari vinnslu. Aðgerðirnar eru allar framkvæmanlegar og snúa að barnavernd, lögreglu og heilsugæslu, virku samstarfi þar á milli og greiðari leiðum til að tilkynna grun um ofbeldi gegn barni.

Því miður gætir sinnuleysis stjórnvalda um málefni barna víðar því að skortur er á skýrri leiðsögn, skilvirku skipulagi og heildstæðri stefnu í geðheilbrigðismálum barna sem orðið hefur til þess að mörg þeirra eru án skýrra úrræða og illviðráðanlegir fylgikvillar ná að myndast. Allt of mörg börn bíða greiningar og hjálpar.

Fleiri eru látnir bíða. Verkalýðsfélög náðu með kröfum sínum fram kauphækkunum en einnig loforðum stjórnvalda um tilteknar aðgerðir í svokölluðum lífskjarasamningum en það orð er reyndar allt of stórt fyrir niðurstöðuna. Loforðin eru flest óútfærð en skilaboðin til aldraðra og öryrkja eru skýr. Þau skulu bíða til áramóta eftir hærri greiðslum. Í þeirra hópi er fátækasta fólkið á Íslandi sem þarf að láta sér nægja rúmar 200.000 kr. á mánuði. Ég minni á að öll önnur norræn ríki gera meira en ríkisstjórn Íslands til að auka jöfnuð. Samfylkingin hefur lagt til að lífeyrir hækki í takti við lágmarkslaun og skorar á stjórnvöld að draga úr tekjuskerðingum. Þessa dagana bíða mörg þingmál afgreiðslu og umræður síðustu daga og nætur hafa sýnt mjög greinilega nauðsyn á auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem meiri hluti þjóðarinnar hefur reyndar lengi kallað eftir.

Á meðal þingmála sem bíða er mál Samfylkingarinnar um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Við munum ekki fara í sumarfrí án þeirrar réttarbótar fyrir fatlaða Íslendinga.

Við bíðum enn á síðustu dögum þingsins eftir nýrri fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og breyttri áætlun í ríkisfjármálum þar sem brugðist er við verri hagspá, samdrætti í ferðaþjónustu og loðnubresti. Ekki er við þingið að sakast að fjármálaráðherrann hafi ekki kynnt nýja stefnu heldur vandræðagang ríkisstjórnarinnar sem fékk stjórnarmeirihlutann til að samþykkja algjörlega óraunhæfa fjármálastefnu fyrir rúmu ári. Samfylkingin gagnrýndi þá stefnu harðlega en ríkisstjórnin hlustaði ekki á varnaðarorðin.

Látum það nú vera þótt stjórnarliðar fari ekki að ráðum okkar jafnaðarmanna. Þau hunsuðu líka gagnrýni fjármálaráðs sem benti þeim á með skýrum orðum að með stefnunni væri ríkisstjórnin að sníða sér spennitreyju í ríkisfjármálum og þau yrðu annaðhvort að skera niður útgjöld eða hækka skatta í niðursveiflu. Ríkisstjórn sem hvorki getur komið sér saman um niðurskurð né tekjuöflun grípur til þess ráðs að leggja fram nýja stefnu og fer um leið gegn lögum um opinber fjármál. Óábyrg stefna í ríkisfjármálum bitnar alltaf á almenningi sem ber kostnaðinn af gjörðum stjórnmálamanna sem eru ekki færir um að horfa út fyrir kjörtímabilið heldur marka stefnu sem heldur ekki vatni og er óframkvæmanleg nokkrum mánuðum eftir samþykkt hennar.

Forsætisráðherra kallaði nýlega í erlendu riti eftir því að framsæknar hreyfingar og vinstri flokkar í Evrópu sameinuðust og mynduðu fjölþjóðlega fylkingu um róttækar lausnir á tímum loftslagsbreytinga og efnahagslegs ójafnaðar. Ég tek undir með ráðherranum en orðin hafa holan hljóm þegar þau koma frá stjórnmálamanni sem segir eitt í útlöndum en gerir annað á heimavelli, sem leiðir ríkisstjórn gömlu valda- og íhaldsflokkanna og styður fjármála- og efnahagsráðherra Sjálfstæðisflokksins, ríkisstjórn sem vill hvorki leggja á sanngjörn auðlindagjöld né láta auðmenn greiða sinn réttláta skerf til velferðarinnar, ríkisstjórn stöðnunar og óréttlætis. — Góðar stundir.