149. löggjafarþing — 114. fundur,  31. maí 2019.

störf þingsins.

[09:56]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Mig langar að gera að umtalsefni kolsvarta skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi. Þar kemur fram margt sem er óhuggulegt að verða vitni að. Þótt ýmsir þættir þessa hafi verið í umræðunni má segja að þeir séu staðfestir í þessari skýrslu.

Greiningardeildin bendir á að skipulega sé unnið að misnotkun opinberra bótakerfa, vinnumiðlunar, móttökukerfa vegna flóttafólks og hælisleitenda auk margvíslegrar félagslegrar þjónustu sem stendur til boða. Í hættumatsskýrslunni segir að rannsóknir lögreglu leiði í ljós skipulagða misnotkun tiltekinna erlendra afbrotamanna og hópa á opinberum þjónustukerfum á Íslandi. Líklegt sé að í einhverjum tilvikum njóti hóparnir aðstoðar íslenskra ríkisborgara og/eða erlendra manna sem búsettir eru hér á landi. Í þessu sambandi bendir greiningardeildin á að brotalamir sé að finna í opinberum kerfum, jafnt innan einstakra stofnana og í samstarfi þeirra. Gefið er til kynna að hælisleitandi sem hingað kemur kunni að vera gerður út af tengilið hér á landi sem taki af honum það fé sem honum er greitt úr opinberum sjóðum. Í einhverjum tilvikum er um að ræða tengiliði hér á landi sem þekkja staðhætti og móttökukerfi og veita einstaklingum, jafnvel hópum, aðstoð, segir í skýrslunni.

Greiningardeildin segir að margir skipulögðu glæpahópanna sem hafa náð fótfestu hér á landi komi frá Austur-Evrópu, Póllandi, Litháen, Rúmeníu og Albaníu, t.d. viti deildin um þrjá hópa frá sama Austur-Evrópuríkinu. Í skýrslunni segir:

„Rannsóknir lögreglu leiða í ljós að einstaklingum sem tengjast þessum þremur hópum hefur verið veitt alþjóðleg vernd á Íslandi m.a. á grundvelli kynhneigðar. Nokkrir þessara karlmanna frá íslömsku ríki hafa verið kærðir fyrir kynferðislega áreitni gagnvart konum hér á landi. …

Kennitölur og bankareikningar eru grunnþættir í peningaþvætti og tilfærslum á fjármunum sem aflað hefur verið með skipulagðri brotastarfsemi. Mál sem lögregla hefur haft til rannsóknar sýna að nokkrir meðlimir þessara hópa hafi nýtt sömu kennitölu og þannig m.a. getað leynt veru sinni í landinu en stundað „svarta vinnu“ á sama tíma. Leiðtogi eins hópsins hefur á síðustu misserum sent tugi milljóna króna úr landi. Sami maður hefur þegið félagslega aðstoð af margvíslegu tagi, þar á meðal (Forseti hringir.) fjárhagsaðstoð á sama tíma.“

Þetta er stóralvarlegt mál, virðulegur forseti, og við þessu verður að bregðast.