149. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2019.

störf þingsins.

[10:29]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Fyrir þinginu liggur að fjalla um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Samhliða frumvarpinu er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna.

Aðgerðaáætlunin er í 17 liðum sem miða að því að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu.

Í mínum huga er hér um að ræða mikil tímamót fyrir neytendur og matvælaframleiðendur. Í 5. lið aðgerðaáætlunarinnar segir, með leyfi forseta:

„Ísland ætlar að vera í fararbroddi í aðgerðum til að draga úr útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Innan ramma alþjóðlegra skuldbindinga og á grundvelli lýðheilsusjónarmiða munu íslensk stjórnvöld stefna að því að koma í veg fyrir dreifingu matvæla sem í greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur. Þessu skal náð m.a. með banni við dreifingu tiltekinna sýklalyfjaónæmra baktería í matvælum að undangenginni greiningu á stöðunni, uppsetningu eftirlits og í samræmi við opinbera stefnu í aðgerðum gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería.“