149. löggjafarþing — 121. fundur,  12. júní 2019.

heimsókn forseta Þýskalands.

[13:50]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Háttvirtir alþingismenn. Ég vil vekja athygli á því að forseti Þýskalands, herra Frank-Walter Steinmeier, er staddur á þingpöllum. Forseti Þýskalands er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn í boði forseta Íslands.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta Þýskalands, herra Frank-Walter Steinmeier, velkominn í Alþingishúsið og ég vænti þess að heimsókn hans til Íslands verði til að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli landa okkar. Alþingi vottar forseta Þýskalands og þýsku þjóðinni vináttu og virðingu.

Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]