150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

CBD í almennri sölu.

285. mál
[16:25]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um CBD í almennri sölu. Undanfarin ár hefur mikið verið rætt um notagildi hampjurtarinnar. Eftirspurn eftir iðnaðarhampi hefur vaxið hratt í heiminum en hann er notaður í fjölmargar iðnaðarvörur, t.d. einangrun í bíla, pappír, matvæli og byggingarefni og geta því mikil tækifæri falist í því að rækta iðnaðarhamp hér á landi. Úr jurtinni er einnig hægt að vinna virku efnin THC og CBD, en hið síðarnefnda hefur m.a. verið notað sem fæðubótarefni, í matvæli, snyrtivörur og sum lyf.

Í 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni er kannabis tilgreint sem ávana- og fíkniefni sem fellur undir 1. mgr. 2. gr. laganna og ákvæðið tekur bæði til plantna innan kannabisættkvíslarinnar og þeirra efna sem unnin er úr þeim plöntum. Helstu virku efni kannabisplantna eru THC, eins og ég nefndi áðan, sem heitir tetrahydrocannabinol, sem er vímugjafi, hugvíkkandi efni, og CBD, cannabidiol, sem er ekki vímugjafi. Bæði efnin hafa læknisfræðilegt notagildi og má nota þau í ýmsum tilgangi, en vegna skilgreiningar á kannabisi og afleiðum þess sem ávana- og fíkniefnis, eða ávana- og fíknilyfs þegar um er að ræða tilbúin lyf, eru vörur sem innihalda THC eða CBD lyfseðilsskyld, eftirritunarskyld og Z-merkt. Slík lyf verða því aðeins fengin gegn ávísun læknis með sérfræðimenntun.

Í ljósi þess að CBD er ekki vímugjafi eru fá eða jafnvel engin rök sem standa til þess að það skuli flokkað sem ávana- og fíkniefni eða lyf. Núverandi lagaleg staða CBD er óskýr þar sem það er ekki sérstaklega tilgreint í lögum um ávana- og fíkniefni né heldur í reglugerðum settum á grundvelli laganna. Hins vegar hefur CBD, cannabidiol, alla jafna verið skilgreint sem eitt af virkum efnum kannabisplöntunnar, sem flokkast sem ávana- og fíkniefni samkvæmt áðurgreindum lögum. Það má því teljast líklegt að um CBD skuli gildi sömu reglur og um önnur efni sem unnin eru úr kannabisi, þ.e. að einungis sé heimilað að flytja það inn að fengnu markaðsleyfi Lyfjastofnunar, það sé lyfseðilsskylt, eftirritunarskylt og Z-merkt. Þetta hlýtur að þykja furðulegt, forseti, þegar um er að ræða efni með óumdeilanlegt notagildi og er hvorki ávanabindandi né vímugjafi.

Hægt er með einföldum hætti að vinna virka efnið CBD úr iðnaðarhampi sem inniheldur mjög lítið eða ekkert THC. Mörg nágrannaríki Íslands hafa farið þá leið að heimila slíka vinnslu og lausasölu á afurðunum þegar styrkleiki THC, virka efnið í kannabisplöntunni sem veldur vímu, er innan við skilgreind mörk. Sem dæmi má nefna að í Bretlandi er heimilt að vinna hamptrefjar, olíu og aðrar vörur úr hampjurt að því gefnu að framleiðandinn hafi leyfi fyrir því og að tiltekin skilyrði um magn THC séu uppfyllt. Þegar kemur að lagasetningu um kannabisvörur hefur Evrópusambandið þegar aðgreint THC frá öðrum vörum sem vinna má úr hampjurtinni. Þannig er ræktun og vinnsla úr hampjurtinni lögleg í mörgum Evrópusambandsríkjum þegar um er að ræða plöntur sem innihalda THC-magn undir skilgreindum mörkum. Þær reglur sem gilda um hvaða vörur megi vinna úr jurtinni og fyrirkomulagið á sölu þeirra fer eftir löggjöf hvers lands. Mörg lönd hafa þegar heimilað sölu á vörum sem innihalda CBD sem annaðhvort lausasölulyf eða fæðubótarefni eða bæði.

Eftirspurn eftir aðgengi að vörum sem innihalda CBD hér á landi er nú þegar talsverð. Rétt er að bregðast við þeirri eftirspurn og heimila slíkt aðgengi, enda eru engin rök sem mæla gegn því. Efnið veldur engri vímu, það er ekki ávanabindandi og notkun þess getur verið til hagsbóta fyrir einstaklinga. Það er því lagt til með þingsályktunartillögu þessari að heilbrigðisráðherra verði falið að gera viðeigandi breytingar á reglugerðum til þess að heimila að vörur sem innihalda CBD verði aðgengilegar í almennri sölu. Ef þess þarf leggi ráðherra einnig fram frumvarp til laga til nauðsynlegra breytinga á lögum.

Ég legg svo til að þetta mál fari til velferðarnefndar, enda held ég að það eigi heima þar og vona að það verði góð umræða innan velferðarnefndar um CBD og nauðsyn þess að gera það aðgengilegt.