150. löggjafarþing — 30. fundur,  12. nóv. 2019.

varamaður tekur þingsæti.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 2. þm. Norðvest., Ásmundi Einari Daðasyni, um að hann verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Stefán Vagn Stefánsson. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.