150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Suðvest., Þorgerði K. Gunnarsdóttur, um að hún verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 2. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu, Ómar Ásbjörn Óskarsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Einnig hefur borist bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Þórarinn Ingi Pétursson, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, taki í dag sæti á ný á Alþingi sem varamaður fyrir Þórunni Egilsdóttur og víkur þá 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Hjálmar Bogi Hafliðason, af þingi, en hann hefur verið laginn við að sitja hér áfram hvað sem öðru líður að undanförnu.

Þessir aðilar hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.