150. löggjafarþing — 33. fundur,  18. nóv. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 72/2019 um breytingu á II. og IV. viðauka við EES-samninginn.

270. mál
[16:12]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar í máli nr. 270, tillögu til þingsályktunar um staðfestingu á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á II. viðauka EES-samningsins, en sá viðauki fjallar um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun, og einnig breytingu á IV. viðauka EES-samningsins er fjallar um orkumál.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneytinu og Margréti Ósk Óskarsdóttur frá Mannvirkjastofnun.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar frá því í mars á þessu ári um breytingu á II. viðauka og IV. viðauka, eins og ég nefndi í upphafi, og einnig um heimild til að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins frá árinu 2017 um setningu ramma fyrir orkumerkingar og um niðurfellingu tilskipunar Evrópusambandsins frá 2010.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt.

Undir þetta nefndarálit rita, auk þeirrar sem hér stendur, Ari Trausti Guðmundsson, Bryndís Haraldsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Smári McCarthy. Aðrir nefndarmenn hv. utanríkismálanefndar voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.