150. löggjafarþing — 36. fundur,  27. nóv. 2019.

varamaður tekur þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að 3. þm. Suðvest., Rósa Björk Brynjólfsdóttir, verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Una Hildardóttir.

Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.