150. löggjafarþing — 36. fundur,  27. nóv. 2019.

fjárlög 2020.

1. mál
[15:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Að vanda er heilmikið búið að ræða ýmsa þætti þessara fjárlaga, þessa frumvarps, og ýmsar tillögur komnar fram, sumar góðar og aðrar síðri. En það hefur engu breytt til eða frá. Ég ætla hér í lokin fyrst og fremst að nefna heildarmyndina sem blasir við og hún er sú að á aðeins sex árum er búið að auka útgjöld ríkissjóðs um helming. Við hljótum að velta fyrir okkur hvort þess sjáist næg merki í samfélaginu, hvort við sjáum nógu mikinn mun á samfélaginu miðað við hvernig það var fyrir sex árum í ljósi þess að útgjöld ríkisins hafa aukist alveg gríðarlega. Við getum ímyndað okkur, þegar unnið var að fjárlögum ársins 2014, ef menn hefðu átt kost á því að auka útgjöldin um helming, hvort landsmenn hefðu ekki orðið varir við það og hvort ekki hefði gefist tækifæri til að ráðast í mjög miklar og í mörgum tilvikum nauðsynlegar kerfisbreytingar. Að því hefur ekki verið hugað. Kerfið er á margan hátt gallað og er rekið áfram á sama hátt og látið þenjast út, hefur stækkað um helming á sex árum.