150. löggjafarþing — 41. fundur,  9. des. 2019.

samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árunum 2019 og 2020.

438. mál
[16:23]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Forseta varð á messunni. Hv. þingmaður fjallaði hér um 6. dagskrármálið en ekki 5. dagskrármálið eins og forseeti hafði kynnt, en það var auðvitað samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árunum 2019 til og 2020, stjórnartillaga, 438. mál á þskj. 602, nefndarálit á þskj. 649. Þetta var síðari umræða og hv. þingmaður gerði þessu mætavel skil.