150. löggjafarþing — 55. fundur,  30. jan. 2020.

niðurskurður í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.

[10:50]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir það og við höfum þess vegna verið að forgangsraða í þennan lið, sópa upp gömlum skuldum. Fyrir þó nokkuð mörgum árum var það lenska að koma hingað inn við fjárauka og fá verulega fjármuni vegna þess að veðrið á síðasta ári hefði verið verra en búist hefði verið við. Við höfum verið að reyna að loka þessu gati með því að setja peninga inn þannig að ramminn hefur hækkað. Tilfellið er að á milli áranna 2019 og 2020 jukum við framlög til þjónustuliðarins um 600 milljónir. Engu að síður er ljóst að meira fé þarf inn á þennan lið. Hann var kominn um milljarð fram yfir um síðustu áramót og samkvæmt lögum eiga viðkomandi stofnanir að greiða þær til baka. Það er verkefni sem við erum að fara yfir. Innan ramma ráðuneytisins er þá möguleiki að taka þessa fjármuni af viðhaldi eða nýframkvæmdum til að láta þennan lið standa undir sér eða að koma til þingsins og forgangsraða hærri upphæðum í þágu samgangna í landinu. Og þess vegna er ágætt að við tökum þá umræðu.