150. löggjafarþing — 58. fundur,  6. feb. 2020.

samanburður á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi.

550. mál
[11:17]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég styð þessa skýrslubeiðni heils hugar. Mér finnst alveg sjálfsagt að fá þessa skýrslu og skil ekki af hverju við erum að deila um hvort hún eigi að koma eða ekki. Hún á að koma og ráðherra þyrfti eiginlega að koma með miklu fleiri skýrslur um þetta mál. Það er hellingur þarna sem á eftir að rannsaka vel og vendilega og þar af leiðandi ætla ég bara að segja að ég styð þessa skýrslubeiðni heils hugar og mér finnst sjálfsagt að skýrslan komi.