150. löggjafarþing — 69. fundur,  4. mars 2020.

Almannavarnir.

[16:22]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Sum okkar muna frá árum kalda stríðsins Almannavarnir ríkisins sem nefnd og svo stofnun er gekkst fyrir viðvörunarflautuprófunum tvisvar til þrisvar á ári og safnaði teppum og varnargrímum. Meginframfarir í skipulagi almannavarna sem tóku brátt að snúast fyrst og fremst um náttúruvá fólust í nýrri samhæfingarstöð í Reykjavík og sérlögum um almannavarnir 2008. Umræður um skipurit og stjórnun leiddu til þess að stjórnunarábyrgð lögreglu við aðgerðir í héraði kristallaðist í embætti ríkislögreglustjóra í umboði ráðherra. Nú er unnt að meta reynsluna af framkvæmd og gæðum laganna að rúmum áratug liðnum.

Ég tel að samhæfing björgunar- og hjálparstarfa og stjórnunarhlutverks lögreglu í héraði hafi þróast langt í rétta átt líkt og samstarf við sérfræðinga á mörgum sviðum. Engu að síður blasir við að mörgum verkefnum er ábótavant, t.d. viðbragðsáætlunum, áhættumati í héraði og sérlega landsáhættumatinu sjálfu. Ég nefni líka eflingu viðbragðsaðila, þjálfun og menntun þeirra, hliðrun á hluta af ofkeyrðum björgunarsveitarmönnum úr sjálfboðamennsku í launuð störf. Sums staðar hefur vantað almannavarnir sveitarfélaga.

Verkefni almannavarna er, til upprifjunar, að fylgja stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum. Þar rúmast eftirlit með skipulagi almannavarna á landsvísu og að áhættumat sé unnið í öllum sveitarfélögum. Dregið skal saman heildaráhættumat fyrir landið í heild og gert aðgengilegt fyrir erlenda samstarfsaðila. Vinna þarf að áhættuvarnaaðgerðum en viðbragðsáætlunum þar sem áhætta er talin óásættanleg. Viðbrögð og aðgerðir eru samræmdar við hamfarir. Gott samstarf þarf að vera á milli stofnana ríkisins undir samhæfingarhatti almannavarna. Almannavarnir kalla fyrirtæki í eigu ríkis, sveitarfélaga og í einkaeigu til samráðs við gerð áhættumats og vinnu að viðbragðsáætlunum. Til þess að tryggja fagmennsku við gerð áhættumats og mótvægisaðgerða er víðast hvar talið mikilvægt að stofnun Almannavarna sé sjálfstæð og óháð öðrum stofnunum.

Herra forseti. Náttúruvá eykst augljóslega vegna veðurfarsbreytinga. Aðlögun að afleiðingum þeirra, jafnt og snör viðbrögð þegar bjátar á, snýr að hluta að almannavarnakerfinu. Stórviðri, snjóflóð, skriðuföll, hrun í bröttum jöklum, sjávarflóð á land og fleira verður væntanlega bæði öflugra og algengara en undanfarna áratugi. Aukin hætta er á gróðureldum og Covid-19 veiran kennir okkur eitt og annað í almannavarnamálum. Nefna má hættuna af öflugum eldgosum, eldgosum nærri byggð og stórum jarðskjálftum, í öllum tilvikum miðað við endurkomutíma sem vísindin leggja okkur til. Aðeins dæmin Öræfajökull, Katla, Bárðarbunga, Reykjanesskagi og Tjörnesbrotabeltið á Norðausturlandi eru til marks um það. Inn í stóra rammann tengjast svo enn meiri rannsóknir á náttúruvá, aukin vöktun sem nú er að mörgu leyti til fyrirmyndar og minna verður á endurskoðun og stofnun sjóða, bæði hamfarasjóðs til fjármögnunar verkefna og þjóðarsjóðs til að eiga við stóráföll.

Alls staðar eru brýn verkefni sem þarf að vinna.

Ég styð fast að unnið verði að endurskoðun á almannavörnum landsins. Markmiðið er að auka öryggi okkar með því að tryggja enn betri samhæfingu og meira fé til þátta sem efla skilvirkni, þekkingu, forvarnir og áætlanir. Mikilvægt er að almannavarnir verði sjálfstæð stofnun, líkt og víðast hvar í Norður-Evrópu, undir faglegri stjórn og með framkvæmdastjóra og næga starfsmenn, en viðbragðsaðilar, allt frá lögreglu undir stjórn ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslu til heilbrigðiskerfisins og björgunarsveita, virki sem samhæfð eining. Það þarf að létta álagi af björgunaraðilum sem sinna ýmsum öðrum verkefnum en meðalstórum og stórum aðgerðum. Í þeim eru sjálfboðaliðar vissulega áfram lykilfólk. Einnig er brýnt að haldið verði áfram að þróa og styrkja starfshætti og skipulag samhæfingarstöðvarinnar og starfsstöðva og nefnda sveitarfélaganna. Loks verður að kanna vel og meta gagnsemi þess að færa almannavarnir undir forsætisráðuneytið til að tryggja samhæfingu við gerð áhættumats og í viðbragðsaðgerðum, enda margar stofnanir og ráðuneyti undir hverju sinni og tengslin við þjóðaröryggisráðið styrkari en alla.

Herra forseti. Ég veit að þessi hugmynd er umdeild en lít svo á að hana þurfi að ræða.

Herra forseti. Ég fagna sérstaklega viðamiklum áætlunum ríkisstjórnarinnar er varða viðbragðsgetu og styrk orkufyrirtækja, síma- og netfyrirtækja og stofnana/fyrirtækja sem varða samgöngur í landinu og margt fleira — og auðvitað þeirri eflingu almannavarnakerfisins sem þar er að finna. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að taka þátt í þessum sérstöku umræðum og vísa til spurninga sem dreift hefur verið í þingsal og snúast um nokkur ákveðin atriði eins og endurskoðun, starfshætti, skipulag og fleiri atriði. Ég hlakka til (Forseti hringir.) að verða vitni að umræðum í þingsal.