150. löggjafarþing — 91. fundur,  20. apr. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1142, um aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur; á þskj. 788, um nefndir, starfs- og stýrihópa, frá Þorsteini Víglundssyni; og á þskj. 710, um birtingu alþjóðasamninga, frá Andrési Inga Jónssyni.