150. löggjafarþing — 92. fundur, 22. apr. 2020.
lengd þingfundar.
Þó að ekki sé nú starfað samkvæmt starfsáætlun og þar af leiðandi eigi hefðbundin ákvæði þingskapa, svo sem um lengd þingfunda, ekki við lítur forseti engu að síður svo á að samkomulag sé um að þingfundur geti staðið fram á kvöld ef þörf krefur eða þar til umræðu um öll dagskrármálin er lokið.
Forseti vill jafnframt geta þess að gert er ráð fyrir klukkutímaþinghléi í dag á milli kl. 13 og 14 sem hægt er að nota til þingflokksfunda.