150. löggjafarþing — 93. fundur, 28. apr. 2020.
Matvælasjóður.
728. mál
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þær ræður sem hafa verið fluttar hér í dag og ég er sérstaklega ánægð að sjá að einhugur er um að byggja hér upp öfluga matvælaframleiðslu. — Ástæðan fyrir því að ég þarf að koma mér aðeins neðar á mælendaskrá er sú að það er eitt símtal sem ég verð því miður að taka akkúrat núna, en ég vil biðja hæstv. forseta að setja mig strax á mælendaskrá í þessu máli á eftir.