150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[10:33]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 869, um aftökur án dóms og laga, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur; á þskj. 584, um kafbátaleit, frá Andrési Inga Jónssyni; á þskj. 1052, um áhrif erlendra ríkja á niðurstöður kosninga, frá Helga Hrafni Gunnarssyni; á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir; og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, báðar frá Ólafi Ísleifssyni.