150. löggjafarþing — 95. fundur,  30. apr. 2020.

ársreikningar og endurskoðendur og endurskoðun .

721. mál
[13:22]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Vissulega er það þannig að fyrir þau félög sem heyra undir lög um ársreikninga þá ber þeim skylda til að vera með hluthafalistann í ársreikningi en hv. þingmaður er hér væntanlega m.a. að vísa í það að slíkt gerist einu sinni á ári og það geta orðið miklar breytingar á hluthöfum innan árs. En eins og ég segi, þetta er eitthvað sem við erum ekki að leggja til núna og er ekki beint svona alveg áformað en er eitthvað sem við höfum skoðað og er kannski líklegra en ekki að við færum okkur nær frekara gagnsæi í því.