150. löggjafarþing — 99. fundur,  6. maí 2020.

utanríkisþjónusta Íslands.

716. mál
[22:10]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma upp í andsvar. Það er í sjálfu sér ekkert sérstakt sem þarf að svara. Ég vil ekki orða það þannig að þetta mál sé afturför eða eitthvað slíkt, því að það eru ákveðnir hlutir þarna sem eru jákvæðir. En ég velti því hins vegar fyrir mér hvort allar breytingarnar séu endilega til góðs til lengri tíma litið. Það er bara eitthvað sem við þurfum að fara yfir.