150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

fjáraukalög 2020.

724. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Ágúst Ólafur Ágústsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég skil ekki af hverju ég þarf að vera að taka þennan slag um að það gæti verið skynsamlegt að fjölga hjúkrunarfræðingum, lögreglumönnum o.s.frv. Ég ætla ekki að fara með þessa upptalningu. Ég skil ekki af hverju ég þarf í alvörunni að eiga í þessari samræðu um að nú sé einmitt tíminn til að bæta meira í.

Hv. þingmaður segist vera hluti af þessu stjórnarsamstarfi. Já, þið eruð meira að segja að bæta í að vissu leyti. Ég er bara að segja: Það þarf að gera meira. Margt sem hv. þingmaður hefur sagt í viðtali með mér í fjölmiðlum, eins og að fjölga listamönnum væri hin alvitlaustasta hugmynd sem hann hefur heyrt líka — hv. þingmaður man eftir því — nú er hann að standa fyrir því að fjölga þeim. Ekki satt? (BN: Ekki ræð ég öllu.) Nei, en ræðurðu einhverju, hv. þingmaður? (BN: Einhverju.) Já, ég vona að þú ráðir sem minnstu því einmitt þessi hugmyndafræði sem þú ert að tefla fram hér er gjaldþrota hugmyndafræði hægri kreddu, um að ef orðið opinbert er fyrir framan þá sé það eitthvað slæmt. Það er það ekki, alveg eins og ég sem vinstri maður vil öflugan einkageira, að sjálfsögðu. Ég vil mjög frjálst atvinnulíf, en ég hlýt að geta leyft mér að hugsa að við getum gert betur þegar kemur að opinberu þjónustunni. Ég er ekki að tala út í loftið, það er þörf fyrir það. Þetta er skynsamleg hagfræði sem hefur verið nýtt í 100 ár til að mæta kreppu. Hægri og vinstri flokkar hafa gert þetta um allan heim. Við eigum að tileinka okkur það sem aðrar þjóðir eru að gera. Við eigum ekki að sætta okkur við að þegar atvinnulífið, einkageirinn, lendir í vandræðum þá eigi alltaf að ríkisvæða tapið og einkavæða hagnaðinn. (Gripið fram í.)

Við eigum að taka þessa — (Gripið fram í.) nei, við eigum að taka þessa hugmyndafræðilegu umræðu, hvernig við bregðumst við stöðunni í dag. Það skiptir máli. Núna á sér stað alveg stórkostleg tilfærsla á fjármunum, m.a. vegna aðgerða ríkisstjórnar hv. þingmanns. Höfum þetta allt uppi á borði. Tökum þessa hugmyndafræðilegu umræðu. En vitið þið hvað? Ég er sannfærður um að við í Samfylkingunni höfum rétt fyrir okkur (Forseti hringir.) því að það er tekið undir það sem við erum að segja og gera það um allan heim. Sem betur fer (Forseti hringir.) er Sjálfstæðisflokkurinn ekki við stjórnvölinn í öðrum löndum en því miður er hann það hér. (BN: Það er eitthvað nýtt ef Samfylkingin hefur rétt fyrir sér.)