150. löggjafarþing — 101. fundur,  11. maí 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 288/2019 og nr. 301/2019 um breytingu á I. viðauka og II. viðauka við EES-samninginn.

617. mál
[16:51]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. utanríkismálanefndar. Nefndin hefur fjallað um þessi mál og fengið á sinn fund Kristínu Ninju Guðmundsdóttur frá heilbrigðisráðuneyti og Daða Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar er lúta að breytingum á I. viðauka sem fjallar um heilbrigði dýra og plantna og II. viðauka sem er um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun. Með þessu er þá verið að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins sem lýtur að breytingum varðandi lækningatæki o.fl. Seinni ákvörðunin varðar svo tæknilegar reglugerðir og prófanir og þar er verið að fjalla sérstaklega um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt. Undir nefndarálitið skrifa hv. formaður utanríkismálanefndar, Sigríður Á. Andersen, sú sem hér stendur, Ari Trausti Guðmundsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, en Logi Einarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.