150. löggjafarþing — 103. fundur,  13. maí 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör fyrir fyrirspurn á þskj. 869, um aftökur án dóms og laga, frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur; á þskj. 584, um kafbátaleit, frá Andrési Inga Jónssyni; á þskj. 1052, um áhrif erlendra ríkja á niðurstöður kosninga, frá Helga Hrafni Gunnarssyni; á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, og á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, báðar frá Ólafi Ísleifssyni.