150. löggjafarþing — 104. fundur,  18. maí 2020.

atvinnuleysistryggingar.

812. mál
[20:16]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki annað en að þetta frumvarp sé unnið í góðri sátt milli aðila vinnumarkaðar, beggja vegna borðsins þar. Ég ætla að játa það hér að ég er ekki með það á takteinum hvort Persónuvernd hafi komið að vinnslu frumvarpsins en ég skal afla þeirra upplýsinga og koma þeim til formanns velferðarnefndar og nefndarinnar, enda er það algerlega sjálfsagt.