150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[22:28]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst hæstv. forseti orðar þetta svona þá kem ég hér einfaldlega til að benda á það að hv. þingmaður hafði engar spurningar fram að færa og engin rök. Ég fór hér yfir frumvarpið sjálft. Ég las upp úr greinum þess og lýsingu í frumvarpinu sjálfu á hvaða markmiðum því væri ætlað að ná og hvert hlutverk félagsins væri. Svoleiðis að þegar hv. þingmaður kemur hér og neitar einfaldlega að horfast í augu við þær staðreyndir sem birtast í frumvarpinu sjálfu og spyr engra spurninga er litlu við það að bæta.