150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

þingsköp Alþingis.

840. mál
[17:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Þorsteinn Sæmundsson) (M):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, þ.e. um samkomudag reglulegs Alþingis 2020. Mál þetta var flutt af hæstv. forsætisráðherra fyrir skömmu.

Nefndarálitið er í sjálfu sér einfalt og stutt og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Steingrím J. Sigfússon, forseta Alþingis.

Með frumvarpinu er eingöngu lagt til að samkomudagur regluglegs Alþingis haustið 2020 verði fimmtudagurinn 1. október í stað annars þriðjudags í september, eins og þingskapalög kveða á um. Markmið frumvarpsins er að tryggja aukið ráðrúm til að undirbúa nauðsynlegar breytingar á fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar og til að ganga frá fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025 til framlagningar á Alþingi, sem og frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.“

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn, Brynjar Níelsson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir, Óli Björn Kárason og Þórunn Egilsdóttir.

Um þetta er svo sem ekki meira að segja, herra forseti. Málið er til komið vegna þess ástands sem hér ríkir og er liður í því að við getum haldið starfsemi Alþingis eins eðlilegri og skilvirkri og hægt er.