150. löggjafarþing — 122. fundur,  22. júní 2020.

samgönguáætlun.

[11:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Hún er mjög stutt og ég ætla ekki að fara í neinar orðalengingar eða útskýringar. Þetta er með vísan í viðtal við hæstv. ráðherra á Víglínunni á Stöð 2 í gær. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða verkefni eru það nákvæmlega sem ráðherra telur að frestist, verði fyrirliggjandi samgönguáætlun samþykkt á næsta haustþingi en ekki nú á vorþingi?