150. löggjafarþing — 128. fundur,  26. júní 2020.

ársreikningar og endurskoðendur og endurskoðun .

721. mál
[19:10]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur og endurskoðun, þ.e. um gagnsæi stærri kerfislega mikilvægra félaga, frá efnahags- og viðskiptanefnd. Nefndin fjallaði þó nokkuð um þetta mál, en með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um ársreikninga annars vegar og lögum um endurskoðendur og endurskoðun hins vegar.

Í fyrsta lagi er lagt til að hugtakið „eining tengd almannahagsmunum“ verði rýmkað þannig að fleiri félög sem teljast mega þjóðhagslega mikilvæg falli undir skilgreiningu þess hugtaks en samkvæmt gildandi lögum. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á kröfum um innihald skýrslna stjórnar. Í þriðja lagi er lagt til að kveðið verði á um að ársreikningaskrá skuli, gjaldfrjálst og á opnu vefsvæði, birta ársreikninga og önnur skilaskyld gögn samkvæmt 109. gr. laga um ársreikninga.

Fram komu ábendingar frá Félagi um innri endurskoðun, ágætlega vel rökstuddar athugasemdir og tillögur, sem eru þrjár.

Virðulegi forseti. Ég ætla að renna hér yfir þær eins og þær koma fyrir í nefndarálitinu.

Í fyrsta lagi verði einingu tengdri almannahagsmunum gert skylt að starfrækja endurskoðunardeild sem annist innri endurskoðun og verði óháð öðrum deildum í skipulagi einingar og þáttur í eftirlitskerfi hennar.

Í öðru lagi verði kveðið á um að stjórn einingar tengdrar almannahagsmunum skuli ráða forstöðumann endurskoðunardeildar sem fari með innri endurskoðun í hennar umboði.

Í þriðja lagi verði kveðið á um að innri endurskoðun skuli reglulega gera stjórn og endurskoðunarnefnd grein fyrir starfsemi sinni og að forstöðumaður innri endurskoðunardeildar hafi rétt á að sitja stjórnarfundi þar sem skylt verði að taka á dagskrá og færa til bókar þær athugasemdir sem hann meti mikilvægar.

Nefndin telur athugasemdir Félags um innri endurskoðun vel rökstuddar í umsögn félagsins og telur nauðsynlegt að þær sæti nánari skoðun í ráðuneytinu. Leggur nefndin til að ábendingarnar verði hafðar til hliðsjónar við næstu endurskoðun laganna og metið á hvaða hátt réttast sé að bregðast við þeim.

Þá er hér fjallað um beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla. Í umsögnum sínum lögðu reikningsskilaráð og Skatturinn til að skylda til að beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum við gerð ársreiknings yrði rýmkuð frá því sem kveðið er á um í VIII. kafla laga um ársreikninga og slík skylda látin ná til fleiri félaga. Slíkt myndi stuðla betur að því að ná markmiðum frumvarpsins enda væru gerðar ríkari kröfur til upplýsingagjafar í alþjóðlegum reikningsskilastöðlum en í lögum um ársreikninga. Auk þess myndi breytingin leiða til þess að auka samræmi á milli arðgreiðslustofns félaga þar sem misræmi milli alþjóðlegra reikningsskilastaðla og laga um ársreikninga gæti valdið því að arðgreiðslustofninn væri ekki sá sami. Þá bæri félögum sem gera reikningsskil í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla að skila ársreikningi til opinberrar birtingar ekki síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs sem auka myndi gagnsæi í reikningsskilum þeirra félaga sem beita stöðlunum við gerð ársreiknings. Nefndin telur að rök kunni að vera til þess að rýmka gildissvið 90. gr. laga um ársreikninga og fella fleiri félög undir skyldu til beitingar alþjóðlegra reikningsskilastaðla en nú er gert. Hins vegar getur slíkur áskilnaður verið þungur í vöfum og ljóst að breyting að þessu leyti verður aðeins gerð að vel ígrunduðu máli. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að ábendingar í þessa veru sæti sérstakri skoðun.

Endurskoðun skýrslu stjórnar. Við umfjöllun nefndarinnar var bent á að óvissa væri uppi um hvort skýrsla stjórnar væri hluti ársreiknings samkvæmt íslenskum lögum og hvort endurskoða bæri skýrslu stjórnar, en hún er oft, eins og við þekkjum, afar efnismikil og innihaldsrík. Misræmis gætir hins vegar í lögum um ársreikninga að þessu leyti.

Nefndin telur ljóst af 3. gr. laga um ársreikninga að skýrsla stjórnar teljist vera hluti ársreiknings samkvæmt íslenskum lögum. Jafnframt telur nefndin að ákvæði 2. málsliðar 2. mgr. 104. gr. laga um ársreikninga beri að túlka þannig að í áritun endurskoðanda, hvað varðar skýrslu stjórnar, felist ekki staðfesting á öðru en því að skýrslan innihaldi þær upplýsingar sem þar eiga að koma fram lögum samkvæmt. Staðfestingin jafngildi með öðrum orðum ekki því að réttmæti upplýsinganna hafi verið sannreynt.

Þá kem ég að breytingartillögu nefndarinnar sem snýr að inntaki skýrslu stjórnar í 2. gr. Í umsögn sinni til nefndarinnar benti Skatturinn á að 2. gr. frumvarpsins, um breytingu á 66. gr. laga um ársreikninga, byggðist á 19. gr. tilskipunar 2013/34/ESB, um árleg reikningsskil o.fl. Til aukins skýrleika væri að taka 2. málslið 3. mgr. 1. töluliðar ákvæðisins, þar sem kveðið væri á um að skýrsla stjórnar skyldi innihalda tilvísanir til fjárhæða sem settar væru fram í árlegum reikningsskilum ásamt frekari skýringum, upp í lagatextann.

Jafnframt benti Skatturinn á að með lokamálslið 5. töluliðar 1. mgr. 2. gr. frumvarpsins væri heimilað að upplýsingarnar sem tilgreindar væru í 5. tölulið yrðu veittar í skýringum með ársreikningi í stað skýrslu stjórnar. Til að tryggja gagnsæi og skýrleika í framkvæmd væri nauðsynlegt að gera kröfu um að í skýrslu stjórnar væri vísað beint í viðeigandi skýringarlið þegar heimildinni væri beitt. Auk þess væri eðlilegt að sambærileg heimild gilti um upplýsingar samkvæmt 3. og 4. tölulið ákvæðisins.

Nefndin fellst á þessar ábendingar og leggur til breytingu á 2. gr. frumvarpsins í þessa veru.

Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt og tilgreinir breytinguna við 2. gr., sem ég ætla ekki að lesa hér, en fylgir álitinu og er að efni til sú sem ég fór yfir. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Oddný G. Harðardóttir tóku þátt í fundinum þar sem málið var afgreitt í gegnum fjarfundabúnað. Oddný G. Harðardóttir skrifar undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda.

Undir álitið rita eftirtaldir hv. þingmenn: Óli Björn Kárason, Jón Steindór Valdimarsson, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Smári McCarthy og Willum Þór Þórsson.